
Mercedes-Benz hefur aldrei áður í sögunni selt jafnmarga fólksbíla á einu ári eins og á árinu 2013. Alls seldust yfir 1,4 milljónir fólksbíla og samtals yfir 1.490.000 bílar þegar atvinnubílar eru taldir með. Þetta er þriðja árið í röð sem sölumet fellur hjá Mercedes-Benz. Einkum má rekja þetta til nýrra bíla sem hafa komið á markaðinn á árinu, þar á meðal er ný E-lína og nýr CLA coupe.
CLA hefur komið sterkur inn á markaði og seldust yfir 12.000 bílar af þessari gerð á einungis fjórum mánuðum í Bandaríkjunum. Ný Mercedes-Benz S-lína naut einnig mikilla vinsælda. Hann kom á markað síðastliðið sumar og á einungis fáeinum vikum varð hann mest seldi lúxusbíllinn í sínum stærðarflokki í heiminum. Bíllinn er framleiddur í Sindelfingen í Þýskalandi. Alls eru framleiddir um 460 bílar á dag sem er mesta framleiðsla á S-línunni frá upphafi.
Til að mæta aukinni eftirspurn hefur Mercedes-Benz lagt út í miklar fjárfestingar. Verksmiðjan í Sindelfingen var stækkuð og var kostnaður við þá stækkun um einn milljarður evra. Auk þess verður fjárfest fyrir yfir einn milljarð evra í verksmiðju fyrirtækisins í Bremen en hún mun gegna lykilhlutverki í framleiðslu á nýjum Mercedes-Benz C-Class.