
Fyrsti hreini rafbíll Porsche, Porsche Taycan, nýtur töluverðrar athygli á heimsvísu. Bíllinn mun ekki verða sýndur almenningi fyrr en í september og endanlegt útlit hans er enn á hugmyndastigi. Engu að síður hafa yfir 20.000 manns, allsstaðar að úr heiminum, sýnt kaupum á honum mjög mikinn áhuga eins og Porsche staðfesti á alþjóðlegu bílasýningunni í Genf.
Það er sá fjöldi sem nú þegar hefur staðfest áhuga sinn á kaupum á bílnum með greiðslu 2.500 evra staðfestingargreiðslu (í Evrópu). Porsche Taycan mun verða frumsýndur í september og áætlað er að afhendingar fyrstu bíla fari fram fyrir árslok.
Hröðun bílsins frá 0 til 100 kílómetra hraða á klukkustund mun taka þónokkuð skemmri tíma en 3,5 sekúndur og drægnin verður um og yfir 500 kílómetrar samkvæmt NEDC staðlinum. Auk þess verður mögulegt að ná fram 100 kílómetra hleðslu á einungis fjórum mínútum.