
Bílaumboðið Askja býður til rafbílasýningar Kia í sýningarsal sínum að Krókhálsi 11 nk. laugardag klukkan 12-16. Kynnt verður rafbílalína Kia en um er að ræða Kia Soul EV, Kia Optima PHEV í tveimur útfærslum, Kia Niro PHEV og Kia Niro HEV. Alls eru í boði fimm mismunandi gerðir rafknúinna bíla, en Kia var á dögunum útnefndur framleiðandi ársins í flokki Plug in Hybrid fólksbíla hjá Green Fleet.
Kia Soul EV er hreinn rafbíll og skilar fínni hröðun og hámarkshraða sem er 145 km/klst. Drægni bílsins er um 250 km á rafmagninu og losunin er engin. Kia Niro í Plug-in Hybrid útfærslu er með 141 hestafla tengiltvinnvél sem samanstendur af 1,6 lítra bensínvél og rafmótor. Bíllinn státar af rafakstursdrægni upp á 58 kílómetra. Optima í Plug-in Hybrid útfærslu er búinn tengiltvinnvél sem samanstendur af rafmótor og 1,7 lítra bensínvél. Optima er einnig fáanlegur í Sportswagon útfærslu en hann er rúmbetri útgáfa af hinum sígilda Optima og býður upp á meira farangurspláss.