
Toyota RAV4 verður í fyrsta sinn kynntur í Hybrid útfærslu hér á landi á morgun (laugardag). Hybrib bílar eru að sækja í sig veðrið hér á landi sem og annars staðar enda þykja þeir spennandi kostur bæði út frá umhverfs-og eyðslu sjónarmiði. Tvinntæknin tvinnar saman brunamótor og rafmótor og nýtir tæknin orkuna sem annars fer til spillis þegar bremsað er og breytir henni í rafmagn sem síðan er notuð til að knýja bílinn. Bíllinn verður því sparneytnari.
Góð reynsla er komin á Hybridtæknina frá því Toyota kynnti hana fyrst með Prius árið 1997. Síðan þá hafa Auris og Yaris bæst í hópinn auk þess sem bílar frá Lexus hafa þennan búnað. Meira en 8 milljón Toyota- og Lexusbílar hafa verið seldir með Hybridbúnaði.
RAV4 Hybrid verður nú fáanlegur bæði fjórhjóla- og framhjóladrifinn, fjórhjóladrifinn með venjulegri bensínvél og framhjóladrifinn með dísilvél. Verð RAV4 er frá 4.990.000 kr.
Laugardaginn 9. janúar verður fyrsta bílasýning ársins hjá viðurkenndum söluaðilum Toyota í Reykjanesbæ, Kauptúni, á Akureyri og Selfossi og er stjarna sýningarinnar hinn RAV4 Hybrid. Opið verður frá kl. 12 til 16.