
„Við kynnum núna á laugardaginn nýja útgáfu af Porsche Panamera. Satt að segja skortir mig orð til að lýsa honum og hvet því fólk til að koma í Porsche-salinn og skoða hann í návígi,“ segir THomas Már Gregers sölustjóri Porsche á Íslandi.
Fram kemur í tilkynningu frá Bílabúð Benna að mörg orð hafi verið höfð um bílinn frá því hann kom fyrst á markað árið 2009. Bílablaðamenn hafi farið mikinn og m.a. líkt Panamera við töfrateppi götunnar sem breyta megi í villidýr með einni snertingu og allt þar á milli. En allir eru sammála um eitt; að einn bíll skuli búa að báðum þessum kostum, þægindunum og sportlegum eiginleikunum, í svo ríkum mæli, sé einstakt.
Þeir sem áhuga hafa á töfrateppum götunnar geta kíkt í Bílabúð Benna á morgun en þar verður sérstök laugardagsopnun í Porsche – salnum. Þar á meðal verður Porsche Panamera.