Fossar fjárfestingarbanki hafa ráðið Andreu Björnsdóttur í starf forstöðumanns á skrifstofu forstjóra. Andrea, sem hefur störf í dag, kemur til Fossa frá Bank of America í Lundúnum þar sem hún starfaði tímabundið á fjárfestingarbankasviði í framhaldi af útskrift frá London Business School. Áður starfaði hún í fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka og áhættustýringu frá árinu 2018.

Andrea er með BSc gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík og meistaragráðu í fjármálum frá London Business School. Auk þess hefur hún lokið prófi í verðbréfaviðskiptum.

Sjá einnig: Fossar verða fjárfestingarbanki

Fossar þjónusta innlenda og erlenda fjárfesta á sviði markaðsviðskipta, fyrirtækjaráðgjafar og eignastýringar. Nýlega fékk félagið starfsleyfi sem fjárfestingarbanki frá fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands.

Helstu verkefni Andreu munu snúa að því umbreytingarferli sem fylgir nýju starfsleyfi. Meðal annars felast þau í verkefnastjórnun í tengslum við breytingar á innviðum bankans ásamt vinnu við sértæk verkefni sem snúa að viðskiptaþróun félagsins.