Andrés Helgi Hallgrímsson hefur verið ráðinn fjármálastjóri Borgarplasts og tekur hann við af Ernu Eiríksdóttur. Andrés starfaði áður sem sölustjóri sjávarútvegslausna hjá Wise í tæp sex ár. Greint er frá ráðningu hans í fréttatilkynningu.

Andrés hefur verið fjármálastjóri og framkvæmdastjóri hjá ýmsum fyrirtækjum. Hann starfaði meðal annar sem framkvæmdastjóri hjá Omnis, Cintamani, Múlakaffi og A4. Hann var áður fjármálstjóri Kraftvéla og KFD AS dótturfélags Kraftvéla sem var umboðsaðili Komatsu í Danmörku.

Andrés er viðskiptafræðingur af endurskoðunarsviði frá Háskóla Íslands. Hann er kvæntur Snædísi Kristinsdóttur og saman eiga þau þrjú börn.

„Það er mikill styrkur fyrir okkur að fá Andrés til liðs við Borgarplast. Hann hefur ekki aðeins gríðarlega reynslu af rekstri fyrirtækja sem fjármálastjóri heldur hefur hann einnig starfað sem framkvæmdastjóri og þekkir rekstur fyrirtækja mjög vel. Framtíðin er björt hjá Borgarplasti og góður hópur starfsmanna tilbúin að takast á við þau tækifæri sem eru fram undan í okkar rekstri,“ segir Matthías Matthíasson, framkvæmdastjóri Borgarplasts.

Borgarplast, sem var stofnað í Borgarnesi árið 1971 framleiðir fiskiker, frauðkassa fyrir ferskan fisk, húseinangrun og ýmsar fráveitulausnir á borð við olíuskiljur, brunna og rotþrær. Í Mosfellsbæ rekur Borgarplast hverfisteypu fyrir fráveitulausnir og fiskiker. Í Reykjanesbæ starfrækir fyrirtækið frauðverksmiðju.