Árni Gunnarsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Olíudreifingar og mun taka við af Herði Gunnarssyni sem hefur gegnt því starfi undanfarin 22 ár. Árni mun hefja störf hjá Olíudreifingu í júní næstkomandi „og mun leiða umbreytingu og áframhaldandi vöxt félagsins“, að því er segir í tilkynningu.

Árni hefur undanfarin þrjú ár verið framkvæmdastjóri Iceland Travel en þar áður var hann framkvæmdastjóri Flugfélags Íslands í 15 ár.

Árni hefur auk þess setið í ýmsum stjórnum og ráðum, var m.a. annars formaður Samtaka ferðaþjónustunnar og sat í stjórn ERA European Regional Airline Association. Hann er með meistaragráðu í rekstrarhagfræði frá Universität Augsburg, Þýskalandi.

„Það er mjög spennandi að koma inn í þetta vel rekna og mikilvæga innviðafyrirtæki sem náð hefur góðum árangri í að veita framúrskarandi þjónustu um allt land. Á sama tíma er gríðarlega áhugavert að fá að leiða fyrirtækið og skilgreina hlutverk þess í nýju umhverfi orkuskipta sem mun breyta landslaginu í atvinnugreininni á komandi árum,“ segir Árni Gunnarsson, nýráðinn framkvæmdastjóri Olíudreifingar.

„Stjórn félagsins þakkar Herði fyrir farsæl störf í þágu félagsins og býður Árna velkominn til starfa. Árni tekur við á áhugaverðum tímum þar sem nýir orkugjafar skapa félaginu ýmis tækifæri til vaxtar og verður það hlutverk nýs framkvæmdastjóra að leiða það umbreytingarferli sem er framundan,“ segir Már Sigurðsson, stjórnarformaður Olíudreifingar.