Orka náttúrunnar hefur ráðið Árna Hrannar Haraldsson í starf framkvæmdastjóra fyrirtækisins og mun hann hefja störf þann 1.maí næstkomandi. Árni Hrannar býr yfir mikilli reynslu sem stjórnandi í íslenskum og alþjóðlegum fyrirtækjum síðustu tuttugu ár. Greint er frá ráðningu hans í fréttatilkynningu.

Hann tekur við framkvæmdastjórastöðunni af Berglindi Rán Ólafsdóttur, sem var ráðin forstjóri ORF Líftækni í lok október á síðasta ári.

Árni hefur búið í Sviss frá árinu 2011 og síðustu ár starfað sem framkvæmdastjóri og borið ábyrgð á aðfangakeðju MSPharma sem er alþjóðlegt lyfjafyrirtæki með starfsemi víða um heim. Þá hefur Árni Hrannar einnig gegnt lykilhlutverkum hjá Xantis Pharma í Sviss, Actavis og 66° Norður.

„Árni Hrannar hefur mikla alþjóðlega reynslu sem yfirmaður í markaðsleiðandi lyfjafyrirtækjum. Þá hefur hann yfirgripsmikla og fjölbreytta þekkingu á öllum sviðum virðiskeðjunnar hvort sem það eru innkaup, rekstur, framleiðsla eða stýring á flóknum aðfangakeðjuferlum sem dæmi. Þetta eru allt hlutir sem munu nýtast okkar fyrirtæki vel auk þess sem metnaður og sýn Árna Hrannars fer vel saman við þá vegferð sem Orka náttúrunnar er á,“ segir Helga Jónsdóttir stjórnarformaður ON.

Árni Hrannar er fimmtugur, giftur með þrjú börn og alinn upp í Hafnarfirði þar sem hann gekk í grunnskóla og framhaldsskóla. Hann lauk B.SC. námi í efnafræði frá Háskóla Íslands árið 1997 og M.SC. gráðu í rekstrarverkfræði frá Danmarks Tekniske Universitet (DTU) árið 2000.

„Ég hlakka til að leiða öfluga starfsemi Orku náttúrunnar og halda áfram uppbyggingu fyrirtækisins á Íslandi. Að vinna í góðum hópi fólks að ábyrgri nýtingu auðlinda Íslands samfélaginu til góða er að mínu mati mikil forréttindi,“ segir Árni Hrannar Haraldsson nýráðinn framkvæmdastjóri ON.