Ásbjörn Gíslason, aðstoðarforstjóri samstæðu Samskipa, hefur sagt starfi sínu lausu frá og með 1. september næstkomandi.

Ásbjörn hefur verið hjá Samskipum í yfir 27 ár. Hann var lengi forstjóri Samskipa hf. á Íslandi, stýrði Samskip Logistics og hefur frá árinu 2019 verið aðstoðarforstjóri samstæðu Samskip Group. Ásbjörn hefur leitt stækkun á félaginu, þar með talin kaup á fjölda fyrirtækja, svo sem Van Dieren, Geest, Frigocare frystigeymslum og á Nor Lines. Hann hefur jafnframt leitt félagið inn á nýja markaði víða um heim. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Ásbjörn Gíslason, aðstoðarforstjóri Samskipa:

„Þetta hefur verið langt og skemmtilegt ferðalag með Samskipum. Það hafa verið mikil forréttindi að vinna svona lengi hjá fyrirtækinu við uppbyggingu á starfsemi þess um allan heim. Samskip eru frábært fyrirtæki og ég kem til með að sakna mjög samstarfsfólks míns, en framtíð fyrirtækisins er björt. Starfinu hefur fylgt mjög mikil ferðalög og hlakka ég nú mikið til að verja meiri tíma með vinum og fjölskyldu.“

Kari-Pekka Laaksonen, forstjóri Samskipa:

„Sjónarsviptir er að Ásbirni Gíslasyni, en hann hefur spilað stórt og mikilvægt hlutverk fyrir fyrirtækið Samskip, um langan tíma. Við þökkum Ásbirni öll hans góð störf fyrir Samskip og óskum honum velfarnaðar.“