Bjarni Kristinn Torfason hefur verið ráðinn áhættustjóri Lífsverks. Hann kemur til lífeyrissjóðsins frá Íslandsbanka þar sem hann starfaði síðustu þrjú árin sem sérfræðingur í markaðsáhættu á áhættustýringarsviði bankans.

Áður vann Bjarni í sex ár í greiningardeild Deutsche Bank í New York við greiningu skuldabréfavafninga og vann í afleiðudeild Markaðsviðskipta Íslandsbanka og Glitnis á árunum 2004-2006. Þá tók Bjarni þátt í vinnu rannsóknarnefndar Alþingis um bankahrunið.

Bjarni er með doktorsgráðu í fjármálum og hagfræði frá Columbia Business School í New York og B.S. gráður í stærðfræði og iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands. Hann hefur einnig lokið prófi í verðbréfaviðskiptum.

„Ég hlakka til að hefja störf hjá Lífsverki og takast á við spennandi verkefni sem áhættustjóri, meðvitaður um það ábyrgðarhlutverk sem sjóðurinn gegnir,“ segir Bjarni í tilkynningu á heimasíðu Lífsverks.