Daði Guðjónsson hefur verið ráðinn forstöðumaður markaðs- og umhverfismála hjá Krónunni og mun hefja störf í ágúst. Hann hefur starfað sem fagstjóri neytendamarkaðssetningar hjá Íslandsstofu síðustu átta ár og stýrt þar erlendum markaðsverkefnum fyrir íslenskar útflutningsgreinar.

Meðal markaðsherferða sem Daði stýrði hjá Íslandsstofu er Íslandsveruleikinn Icelandverse og hátalaraherferðin Let it Out. Auk þess stýrði Daði nýjasta útspilinu OutHorse þar sem ferðalöngum gefst kostur á að „úthesta“ vinnupósti sínum meðan á fríinu stendur. Markaðsverkefnin hafa hlotið alþjóðleg verðlaun og viðurkenningar og náð til milljóna manna um allan heim.

Þar áður starfaði Daði m.a. sem markaðsstjóri hjá ferðaskrifstofunni Úrval Útsýn, útsendingarstjóri hjá RÚV og fyrir auglýsingastofuna Kapital.

Hann er með MBA gráðu frá Háskólanum í Reykjavík og BA gráðu í hagfræði, með fjölmiðlafræði sem aukagrein, frá Háskóla Íslands.

Daði Guðjónsson:

„Það er gríðarlega spennandi að hefja störf hjá fyrirtæki eins og Krónunni. Krónan er verðmætt vörumerki sem hefur verið í fararbroddi í smásölu þegar kemur að nútímalegri þjónustu, samfélagslegri ábyrgð, umhverfisábyrgum starfsháttum, og ekki síst virkri umhyggju og eflingu starfsfólksins. Krónan hefur komið öllum þessum þáttum rækilega á framfæri og það er spennandi og verður gefandi að fá tækifæri til að halda áfram því árangursríka markaðsstarfi sem þar hefur verið unnið.“

Ásta Sigríður Fjeldsted, framkvæmdastjóri Krónunnar:

„Krónan hefur markvisst byggt upp traust og styrkt ímynd sína meðal viðskiptavina okkar og var í fyrra valið vörumerki ársins fyrir framúrskarandi markaðssetningu samkvæmt árlegri könnun MMR. Við byggjum á sterkum grunni en markaðurinn er í sífelldri þróun og því er mikilvægt að hafa skýra og framúrstefnulega sýn fyrir framtíðina. Daði hefur sannað sig sem frumkvöðull innan geirans og við hlökkum til að hefja vegferðina með honum og því flotta teymi sem starfar hjá Krónunni.“