Díana Sveinbjörnsdóttir hefur verið ráðin verslunarstjóri í Hríseyjarbúðinni en Guðrún Þorbjarnardóttir sem gegndi stöðunni til bráðabirgðar hættir 1. september.

Verslunin í Hrísey er lífæð samfélagsins og er stór hluti eyjarskeggja og sumarhúsaeigenda hluthafar í búðinni. Verslunin er opin allt árið og er þar einnig rekin afgreiðsla fyrir Póstinn, mannlegur hraðbanki og sjálfsagreiðsluverslun utan opnunartíma.

Þegar verslunin lagðist af fyrir nokkrum árum síðan tók hópur fólks sig saman og stofnaði félag um nýja verslun sem hefur verið rekin sleitulaust síðan. Verslunin er opin allt árið en með styttan opnunartíma að vetri.

„Það er mikill fengur í því að Díana skuli gefa sig í þetta starf en hún hefur í nokkur ár unnið í versluninni, við afgreiðslu og aðstoð við verslunarstjóra. Ég hef mikla trú á því að Díana eigi eftir að standa sig vel með verslunina,“ segir Valgeir Magnússon, formaður stjórnar Hríseyjarbúðar.