Elma Bjartmarsdóttir hefur verið ráðin nýr markaðsstjóri Icewear. Elma er viðskiptafræðingur með meistaragráðu í markaðsfræðum frá Háskólanum á Bifröst og viðurkenndur stafrænn markaðssérfræðingur frá Akademias.

,,Ég er mjög þakklát fyrir að fá tækifæri til þess að leiða markaðsstarf Icewear og hlakka til að halda áfram á þeirri frábæru vegferð sem Icewear hefur verið síðustu ár. Sóknartækifæri liggur í nýsköpun á útivistarfatnaði en ullarlína Icewear er bylting á heimsvísu. Þar liggur risavaxið tækifæri til vaxtar bæði á innlendum og erlendum mörkuðum. Mín bíða því spennandi og krefjandi verkefni sem ég hlakka mikið til að takast á við og ekki skemmir fyrir að rætur mínar liggja til Víkur í Mýrdal en þar slær hjarta Icewear svo sterkt svo ég er mjög spennt fyrir framtíðinni,“ segir Elma í tilkynningu.

Icewear sérhæfir sig í sölu á útivistarfatnaði til erlendra ferðamanna og er eitt stærsta vörumerkumerkið í útivistarfatnaði á Íslandi. Vörurnar eru seldar í 23 verslunum Icewear víða um land en einnig á vefverslun Icewear sem þjónustar erlenda markaði.

„Markaðsstarfið okkar í dag snertir alla þætti fyrirtækisins hvort sem þeir hafa með ímynd vörumerkisins að gera, þjónustu eða skilaboð um eiginleika vörunnar. Við fögnum því að fá svo reynslumikinn aðila sem Elma er til að leiða markaðsstarf Icewear og nú með auknum áherslum á hvetjandi innri markaðssetning sem stuðlar að aukinni ánægju starfsfólks,” segir Aðalsteinn Pálsson, forstjóri Icewear.