Lögmennirnir Fannar Freyr Ívarsson og Freyr Snæbjörnsson bættust við eigendahóp lögmannsstofunnar LOGOS um síðustu áramót, að því er kemur fram í fréttatilkynningu.

Fannar er lögmaður með leyfi til málflutnings fyrir héraðsdómi. Hann er með LL.M. gráðu frá University of California, Berkeley. Fannar er sérfræðingur í félaga- og fjármunarétti og með víðtæka reynslu á því sviði. Í störfum sínum hefur Fannar sérhæft sig í hvers konar fjármögnun fyrirtækja og veitir fjármálafyrirtækjum og öðrum félögum ráðgjöf er varðar fjárfestingar og lántökur hvers konar. Fannar er hluti af banka- og fjármögnunarteymi LOGOS.

Fannar hefur einnig aflað sér víðtækrar þekkingar og reynslu af vísisfjárfestingum (e. Venture Capital) og áskorunum sem félög í örum vexti standa frammi fyrir. Hann veitir slíkum félögum, vísissjóðum og öðrum þátttakendum í nýsköpunarumhverfinu margs konar lögfræðilega ráðgjöf. Einnig hefur Fannar umtalsverða þekkingu á álitaefnum er varða fjártækni (e. Fintech) og veitir iðulega ráðgjöf á því sviði. Þá er Fannar sérfræðingur í flugrétti og málum er varða kaup, sölu og leigu flugvéla og sinnir reglulega ráðgjöf til flugfélaga og eigenda flugvéla, innlendra sem erlendra, í tengslum við slík viðskipti.

Freyr er lögmaður með leyfi til málflutnings fyrir héraðsdómi. Hann er með LL.M. gráðu í alþjóðlegum bankarétti og fjármálum frá Edinborgarháskóla. Freyr hefur sérhæft sig á sviði fjármálamarkaða og regluverki þeirra. Við veitingu ráðgjafar til innlendra og erlendra fyrirtæki á þessu sviði hefur hann öðlast djúpa og hagnýta sérþekkingu. Freyr hefur haldið fyrirlestra og námskeið um þetta efni og sinnt kennslu við Háskóla Íslands í námskeiðinu Fjármálamarkaðir. Freyr er hluti af banka- og fjármögnunarteymi LOGOS.

Þá er Freyr helsti sérfræðingur stofunnar á sviði fiskeldis og sinnir reglulega ráðgjöf á því sviði og málum er varða kaup, sölu og fjármögnun slíkra fyrirtækja.