Elísabet Austmann hefur verið ráðin forstöðumaður nýsköpunar- og markaðsmála hjá Högum. Til viðbótar við störf tengdum nýsköpunar- og markaðsmálum mun Elísabet einnig bera ábyrgð á vörumerkja- og samskiptamálum Haga á breiðum grunni, að því er segir í fréttatilkynningu.

Elísabet kemur til Haga frá BioEffect þar sem hún starfaði sem framkvæmdastjóri markaðssviðs. Hún leiddi m.a. markaðs- og vörumerkjauppbyggingu á húðvörulínu BioEffect á innlendum og erlendum mörkuðum.

Áður starfaði Elísabet fyrir Marel á Íslandi og í Danmörku þar sem hún m.a. vann að endurmörkun, sem og uppbyggingu og innleiðingu á sýningar- og þjálfunarhúsnæði fyrirtækisins. Þar áður starfaði Elísabet hjá Glitni og Ölgerðinni.

Elísabet, sem er alþjóðamarkaðsfræðingur með MBA frá Háskólanum í Reykjavík, mun hefja störf fyrir Haga í apríl næstkomandi.

„Það er fengur af því að fá Elísabetu til liðs við okkur hjá Högum. Víðtæk reynsla hennar á sviði vörumerkja-, markaðs- og kynningarmála mun nýtast okkur til að efla samtal við viðskiptavini og aðra hagaðila og stuðla að því að þjónustuframboð félaga samstæðunnar uppfylli þarfir neytenda á hverjum tíma sem best. Við bjóðum hana sérstaklega velkomna í teymið,” segir Finnur Oddsson, forstjóri Haga.