Margrét Ormslev Ásgeirsdóttir hefur gengið til liðs við Transition Labs sem yfirmaður rekstrar. Margrét var áður fjárfestingarstjóri hjá Brunni Ventures. Þar á undan starfaði hún sem aðstoðarforstjóri Carbon Recycling International þar sem hún tók þátt í inngöngu félagsins á alþjóðamarkað með græna tæknilausn auk þess sem hún leiddi fjármögnun og rekstur félagsins. Greint er frá ráðningu Margrétar í fréttatilkynningu.

Margrét hefur einnig starfað hjá Landsbankanum í fyrirtækjaráðgjöf, við ráðgjöf til sprotafyrirtækja og í vöruþróun og hjá VGK verkfræðistofu (nú Mannvit), m.a. við uppbyggingu Hellisheiðarvirkjunar.

Hún hefur einnig setið í ýmsum stjórnum og ráðum ásamt því að hafa tekið þátt í fjölmörgum verkefnum á vegum atvinnulífs og stjórnvalda. Sem dæmi má nefna Samráðsvettvang Íslands um aukna hagsæld, stjórn Samtaka iðnaðarins auk þess sem hún er stjórnarformaður Tækniseturs.

Margrét er með meistaragráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands, meistaragráðu í orkukerfum og orkustjórnun frá The School of Renewable Energy Science auk B.S. gráðu í iðnaðarverkfræði.

Kjartan Örn Ólafsson, framkvæmdastjóri Transition Labs:

„Það er frábært að fá Margréti í hópinn. Reynsla hennar í umhverfistækni og alþjóðlegum verkefnum er dýrmæt fyrir Transition Labs sem ætlar sér að umbylta grænum iðnaði á Íslandi og hraða þróun alþjóðlegra umhverfislausna.”

Margrét Ormslev Ásgeirsdóttir:

„Ég er gríðarlega spennt fyrir starfinu. Ég brenn fyrir því að vinna með og skapa samstillt teymi sem leysir stór vandamál og varla er til stærra og brýnna verkefni í dag en loftslagsvandinn. “

Um Transition Labs:

Transition Labs leitar uppi framúrskarandi erlend loftslagsverkefni, aðstoðar við að koma þeim á legg hér á landi og auðveldar þeim að skala fyrirtækin upp í rekstrarhæfa stærð. Fyrirtækið hefur nú þegar hafið samstarf við sum af metnaðarfyllstu loftslagsverkefnum heims. Að baki stofnun Transition Labs standa Davíð Helgason, stofnandi Unity, og Kjartan Örn Ólafsson, frumkvöðull og tæknifjárfestir.