Kerecis hefur ráðið Helga Jósepsson sem forstöðumann lögfræði- og skattamála. Hann mun starfa á skrifstofu forstjóra Kerecis í Reykjavík.

Helgi kemur til Kerecis frá hugbúnaðarfyrirtækinu LS Retail þar sem hann starfaði í sjö ár og bar ábyrgð á lögfræði- og skattamálum. Áður starfaði hann sem skattalögfræðingur hjá KPMG á Íslandi.

Helgi býr að reynslu á fyrirtækja- og skattarétti og hefur undanfarin ár kennt skattarétt í Háskólanum í Reykjavík.

Kerecis er frumkvöðull í notkun á roði og fitusýrum í lækningartilgangi. Vörur Kerecis eru m.a. notaðar til meðhöndlunar á sykursýkissárum, brunasárum, munnholssárum og til margskonar uppbyggingar á líkamsvef. Starfsmenn Kerecis eru nú hátt í 400 á heimsvísu.