Freyja Barkardóttir hefur verið ráðinn sérfræðingur jafnréttismála hjá Ráði. Freyja vann áður við innleiðingu á kynjaðri fjárhags- og starfsáætlun hjá Reykjavíkurborg og sinnti þar sérstaklega verkefnastýringu jafnréttismats þvert á öll svið borgarinnar.

Freyja er með B.Sc. í viðskiptafræði frá Copenhagen Business School í Kaupmannahöfn, viðbótardiplóma í hagnýtri jafnréttisfræði frá Háskóla Íslands og MA í kynjafræði frá Central European University í Búdapest.

Ráður hefur sérhæft sig í þróun lausna fyrir jafnlaunakerfi ásamt ráðgjöf og fræðslu í tengslum við stjórnun og stefnumótun með áherslu á jafnréttislöggjöf og jafnlaunavottun.

Falasteen Abu Libdeh, framkvæmdastjóri Ráðar:

„Jafnrétti er vegferð og jafnvel þó Ísland hafi verið leiðandi í þessum málaflokki þá hafa fyrirtæki mörg tækifæri til að gera betur, þar viljum við bæta í þjónustuna við okkar ört vaxandi viðskiptavinahóp. Það er mikilvægt að jafnrétti sé samofið daglegum rekstri og ákvarðanatöku í fyrirtækjamenningu. Því er sönn ánægja að bjóða Freyju velkomna til starfa og við hlökkum til samstarfsins.“