Guðrún Valdís Jónsdóttir, öryggisstjóri og öryggisráðgjafi hjá Syndis, var valin Rísandi stjarna ársins hjá Nordic Women in Tech Awards. Hún er einnig öryggisstjóri Nova og situr í stjórnum félaganna UAK og Vertonet.

Verðlaunaafhendingin fór fram í Gautaborg síðastliðinn fimmtudag, en tilnefndar voru yfir 400 konur frá Norðurlöndunum. Sigurvegarar voru valdir af alþjóðlegri dómnefnd skipuð tæknifólki úr ýmsum geirum á Norðurlöndunum. Veitt voru verðlaun í tíu flokkum þar sem valið var úr hópi fimm einstaklinga sem höfðu verið valdir af sérstökum dómnefndum í lokahóp hvers flokks.

,,Þetta kom mér virkilega á óvart. Ég bjóst alls ekki við þessu enda virkilega flottar og öflugar konur sem voru einnig tilnefndar til verðlaunanna. Það er ótrúlegur heiður að hafa fengið svona viðurkenningu á mínum störfum á alþjóðlegum vettvangi og er mér mikil hvatning. Mér þykir virkilega vænt um þessa viðurkenningu, sérstaklega þar sem aukin þátttaka kvenna í tækni- og netöryggisgeiranum er mér hjartans mál. Ég vona líka innilega að þetta virki sem hvatning fyrir aðrar ungar konur í tækni- og öryggisbransanum,“ segir Guðrún Valdís.

Hún hefur starfað í tölvuöryggisgeiranum í 5 ár, bæði hérlendis og í Bandaríkjunum, en Guðrún útskrifaðist sem tölvunarfræðingur frá Princeton University árið 2018.

,,Ég fékk eina mínútu uppi á sviði sem ég nýtti til að undirstrika mikilvægi mentora. Ég er ótrúlega þakklát fyrir þá einstaklinga sem hafa leiðbeint mér í starfi í gegnum tíðina og á þeim margt að þakka. Þá biðlaði ég einnig til allra, og ekki síst karlmanna, í salnum til að taka að sér að leiðbeina yngri eða óreyndari konum í tæknigeiranum. Það getur haft gífurleg áhrif á starfsferil þeirra og minnkar líkurnar á brottfalli kvenna úr geiranum.“

Nordic Women in Tech Awards eru haldin árlega með það að markmiði að auka sýnileika framúrskarandi kvenna í tæknigeiranum og hvetja yngri kynslóðir kvenna til að sækja í tæknistörf. Verðlaunin fyrir Rísandi stjörnu ársins eru veitt upprennandi konu í tæknigeiranum sem á síðustu fimm árum hefur sýnt framúrskarandi hæfni og frumleika innan tækniiðnaðarins og þykir hafa það sem til þarf til að verða einn af leiðtogum framtíðarinnar í sínum geira.

Guðrún Valdís var eina íslenska tilnefningin sem hlaut verðlaun í ár. Aðrar konur sem tilnefndar voru frá Íslandi eru Paula Gould, Þórey Vilhjálmsdóttir Proppé, Ingunn Henriksen, Árdís Rut Einarsdóttir, Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, Alondra Silva Muñoz, Anna Karlsdóttir, Violette Rivière. Þá voru íslensku félagasamtökin Vertonet tilnefnd til verðlauna sem og fyrirtækið Crowberry Capital.