Hörn Halldóru- og Heiðarsdóttir er gengin til liðs við Transition Labs þar sem hún mun gegna stöðu verkefnastjóra.

Hörn hefur fengist við ýmis verkefni tengd loftslagsmálum undanfarin ár, nú síðast sem ráðgjafi hjá Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna þar sem hún vann að gerð nýs gagnagrunns með losun gróðurhúsalofttegunda frá matvælakerfum heimsins.

Þar áður var hún framkvæmdastjóri Earth 2.0 og rekstrarstjóri vöruþróunar hjá Marel. Þá hefur Hörn starfað á sumrin sem landvörður á hálendi Íslands. Hörn er stofnandi og framkvæmdastjóri Yljar, fyrirtækis sem vinnur að byggingu hátæknigróðurhúss sem nýtir glatvarma og koltvísýring beint frá jarðvarmavirkjun.

Hún er með B.Sc. gráðu í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands og B.Sc. í hugbúnaðarverkfræði frá sama skóla.

Hörn hefur sérstakan áhuga á umhverfis- og loftslagsmálum og er hluti af Food Climate Partnership, alþjóðlegu teymi sérfræðinga sem rannsakar samspil loftslagsbreytinga og matvælakerfisins og vinnur að aðgerðum þar að lútandi.

Hörn Halldóru- og Heiðarsdóttir:

„Ég er virkilega spennt að fá að starfa við málefni sem ég brenn fyrir ásamt öflugu teymi fólks. Transition Labs ætlar að gera Ísland að leiðandi afli í loftslagsmálum og ég hlakka til að leggja mitt af mörkum í þeirri flóknu og mikilvægu áskorun sem loftslagsbaráttan er.”

Kjartan Örn Ólafsson, framkvæmdastjóri Transition Labs:

„Við erum afar ánægð með að fá Hörn til liðs við okkur. Hún býr yfir víðtækri þekkingu og reynslu sem nýtist okkur við að efla grænan iðnað á Íslandi og hraða þróun og uppbyggingu alþjóðlegra umhverfislausna.”

Hið nýstofnaða Transition Labs, sem leitar uppi erlend loftslagsverkefni til að koma á legg hér á landi, tilkynnti einnig í vikunni um ráðningu Margrét Ormslev Ásgeirsdóttir sem yfirmann rekstrar.