Hrafnkell Pálmarsson hefur gengið til liðs við Pálsson fasteignasölu, að því er kemur fram í fréttatilkynningu.

Hrafnkell hefur starfað síðustu ár sem sölustjóri hjá STEF, höfundaréttarsamtökum tónskálda og textahöfunda, samhliða því að starfa sem veislustjóri og tónlistarmaður, m.a. í hljómsveitunum Í svörtum fötum og Nýju fötin keisarans. Áður starfaði hann við ýmis sölustörf m.a. hjá Nýherja/Sense.

Hrafnkell er með BA gráðu í tónsmíðum frá Listaháskóla Íslands og MBA gráðu frá Háskólanum í Reykjavík. Hann er nú í námi til löggildingar fasteignasala.