Ingunn Svala Leifsdóttir er nýr framkæmdastjóri rekstrar hjá Dohop (e. COO) og ber ábyrgð á fjármálum og rekstri félagsins. Hún mun sitja í framkvæmdastjórn Dohop. Greint er frá þessu í fréttatilkynningu.

„Dohop gerir flugfélögum kleift að selja tengiflug með öðrum flugfélögum og leyfir þeim að fjölga þannig áfangastöðum og þjóna fleiri farþegum en ella. Tækni Dohop er notuð af flugfélögum og samtökum flugfélaga um allan heim á borð við easyJet, Transavia, Air France, Jetstar og SkyTeam,“ segir í fréttatilkynningu.

Ingunn Svala hefur starfað sem framkvæmdastjóri rekstrar Háskólans í Reykjavík frá árinu 2015. Hún hefur fjölbreytta reynslu af stjórnarstörfum og situr í stjórn Kviku banka hf., Slippsins Akureyri ehf. og vörustýringarfélagsins Parlogis ehf. ásamt móðurfélagi þess, Ósum. Ingunn Svala sat í endurskoðunarnefnd VÍS hf. á árunum 2019 til 2021 og í stjórn Líftryggingafélags Íslands á árunum 2017 til 2021.

Ingunn Svala hefur einnig reynslu úr fjármálageiranum en hún starfaði meðal annars fyrir skilanefnd Kaupþings sem framkvæmdastjóri fjármálasviðs bankans á árunum 2009 til 2011 og á árunum 2007 til 2009 starfaði hún sem fjármálastjóri á fjárfestingabankasviði (e. global business controller) hjá Kaupþingi banka. Þá starfaði Ingunn Svala innan Actavis Group samsteypunnar á árunum 2001 til 2007 sem fjármálastjóri Actavis hf., Medís ehf., Actavis Group hf. og Actavis Group PTC ehf.

„Það er frábært að fá Ingunni Svölu til liðs við okkur á þessum tímapunkti. Hún býr yfir viðamikilli reynslu úr atvinnulífinu sem kemur til með að nýtast okkur vel við áframhaldandi vöxt og uppbyggingu félagsins“, segir Davíð Gunnarsson, forstjóri Dohop í fréttatilkynningu.

Ingunn Svala lauk BS gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands árið 1999, með áherslu á reikningshald og fjármál, og Cand. Oecon prófi í viðskiptafræði frá sama skóla árið 2001, með áherslu á reikningshald og stjórnun. Ingunn Svala lauk Advanced Management program (AMP) frá IESE Business School í New York árið 2018.