Jóhannes Hreiðar Símonarson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Auðhumlu, samvinnufélags kúabænda og móðurfélags Mjólkursamsölunnar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

Hann tekur við starfinu af Garðari Eiríkssyni sem hafði gegnt stöðunni frá og með árinu 2016.

Jóhannes starfaði lengi sem ráðunautur hjá BSSL og færði sig síðan yfir til Arion banka og var meðal annars útibússtjóri hjá Arion banka á Hellu. Frá 2020 hefur Jóhannes verið framkvæmdastjóri Umhverfis- og tæknisviðs Uppsveita bs.