Jóhannes Stefánsson hefur verið ráðinn lögfræðingur Viðskiptaráðs Íslands. Þetta kemur fram á vef Viðskiptaráðs. Jóhannes gegnir stöðunni í fjarveru Öglu Eirar Vilhjálmsdóttur, sem er í fæðingarorlofi. 

Jóhannes hefur að undanförnu verið sjálfstætt starfandi ráðgjafi og lögmaður en er auk þess varaformaður stjórnar Menntasjóðs námsmanna. Áður starfaði hann sem framkvæmdastjóri Lindarvatns, aðstoðarmaður mennta- og menningarmálaráðherra og á lögfræðisviði Icelandair Group. 

Hann mun veita framkvæmdastjóra, stjórn og félagsmönnum Viðskiptaráðs ráðgjöf, annast umsagna- og skýrslugerð auk þess að taka þátt í málefnastaði ráðsins. Hann er með meistarapróf í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík.