Júlía Pálmadóttir Sighvats og Guðrún Þórey Sigurbjörnsdóttir hafa tekið við stjórnunarstöðum hjá Advania, að því er kemur fram í tilkynningu.

Júlía Pálmadóttir Sighvats hefur verið ráðin sem forstöðumaður hjá viðskiptalausnum. Hún mun leiða þjónustu, ráðgjöf og innleiðingar lykil viðskiptavina í fjárhagskerfunum Dynamics 365 Finance og Business Central.

Júlía starfaði áður sem hópstjóri hjá Sensa, meðal annars við að hagnýta Microsoft 365 lausnir, sem forstöðumaður hjá á Byko og sem stjórnandi hjá Menntasjóði námsmanna.

Hún er með BS-gráðu í tölvunarfræði frá háskólanum í Skövde, meistaragráðu í verkefnastjórnun og diplómu í jákvæðri sálfræði frá Háskóla Íslands. Auk þess hefur hún lokið PMD-námi frá Háskólanum í Reykjavík og miniMBA náminu „leiðtoginn og stafræn umbreyting“ hjá Akademias. Júlía lauk grunnnámi í markþjálfun hjá Profectus og lýkur námi í exective coaching hjá Opna háskólanum í maí.

Guðrún Þórey Sigurbjörnsdóttir er nýr deildarstjóri Business Central SaaS og Snjallra. Hún mun leiða þjónustu og innleiðingar á Business Central skýjalausnum hjá viðskiptavinum Advania.

Guðrún Þórey hefur unnið sem forritari í viðskiptakerfum Advania undanfarin sex ár og þar á undan hjá LS Retail. Hún hefur reynslu af Business Central og hefur tekið þátt í skýjavæðingu fjölmargra viðskiptavina. Guðrún Þórey hefur einnig reynslu af kennslu úr Ölduselsskóla en hún er með BS-gráðu í tölvunarfræði og B.Ed í grunnskólakennarafræðum frá Háskóla Íslands.

„Við erum virkilega ánægð að hafa fengið þessa öflugu stjórnendur til að leiða teymin okkar. Þær hafa báðar mikla reynslu af viðskiptakerfum, skýjavæðingu og verkefnastjórnun. Sú reynsla mun án efa skila sér í betri þjónustu við viðskiptavini okkar,” segir Sigríður Sía Þórðardóttir, framkvæmdastjóri viðskiptalausna Advania.