Landsnet hefur stofnað dótturfélag sem hefur það hlutverk að setja á fót og reka heildsölumarkað raforku á Íslandi. Katrín Olga Jóhannesdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri félagsins en hún mun hefja störf um mánaðamótin. Nafn nýstofnaða fyrirtækisins er ekki getið í fréttatilkynningunni.

„Það er mjög spennandi kafli framundan í sögu íslenskra orkuviðskipta þar sem bæði notkun og framleiðsla mun verða fjölbreyttari og flóknari en áður. Markmiðið með heildsölumarkaðnum er að skila neytendum hagkvæmasta verði hverju sinni en um leið tryggja orkuöryggi, stöðugleika og gagnsæi orkuverðs. Það er frábært tækifæri að taka þátt í að innleiða nýjar aðferðir í þessum efnum“ segir Katrín Olga.

Hún hefur áratuga reynslu sem stjórnandi og stjórnarmaður í íslensku atvinnulífi. Katrín Olga var fyrsta konan til að gegna stjórnarformennsku hjá Viðskiptaráði Íslands.

Hún er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands með meistaragráðu frá University of Southern Denmark og viðbótarnám frá London Business School.

Guðmundur I. Ásmundsson, forstjóri Landsnets og stjórnarformaður nýja fyrirtækisins:

„Virkir orkumarkaðir eru mikilvægir í orkuöryggi þjóða og það sama gildir hér á landi. Skilvirkt aðgengi að markaði er nauðsynlegt en markaðsumhverfi orku er að breytast hratt í þá átt að notendur geta tekið þátt í rekstri kerfisins og fengið greitt fyrir þá þjónustu. Það er einungis hægt með gagnsæjum verðum, þannig að orka komi inn á kerfið og sé nýtt á réttum tíma. Orkumarkaðir eru einnig mikilvægir fyrir fjárfestingar í framleiðslu á orku en nýir framleiðendur, jafnvel með nýja tækni eins og vindorku, reiða sig á gagnsæ orkuverð til að meta hvort fjárfestingin sé hagkvæm.

Fyrir okkur sem þjóð er þetta tvennt mjög mikilvægt í baráttunni við loftslagsvánna en grænbókin Staða og áskoranir í orkumálum, sem kom út nýlega, bendir á að tvöfalda þurfi orkuframleiðslu á næstu átján árum. Mögulega komumst við af með minna ef notendur geta tekið þátt í orkuviðskiptunum og hagrætt í sinni notkun.“