Íslenska sprotafyrirtækið GOOD GOOD hefur ráðið Kjartan Þórðarson sem fjármálastjóra í höfuðstöðvum fyrirtækisins í Reykjavík. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Kjartan Þórðarson kemur frá Parlogis þar sem hann hefur verið fjármálastjóri síðustu 20 ár. Kjartan er með MSc í hagfræði og fjármálum frá Copenhagen Business School og BA í hagfræði frá Háskóla Íslands.

GOOD GOOD sérhæfir sig í þróun og framleiðslu á matvælum án viðbætts sykurs. Vöruframboðið samanstendur meðal annars af sultum, hnetu- og súkkulaðismyrjum, sætuefnum, stevíu-dropum, sýrópi, bökunarvörum og keto-börum. Öll vöruþróun, sölu og markaðsstarf, stýring aðfangakeðjunnar og gæðamál fara fram á Íslandi, en vörur fyrirtækisins fást í dag í rúmlega 12.500 verslunum í 18 löndum.

Kjartan Þórðarson, fjármálastjóri GOOD GOOD:

„Ég kynntist GOOD GOOD í gegnum vinnu mína sem fjármálastjóri Parlogis fyrir 6 árum síðan, þar sem ég sá aukalega um fjármál fyrirtækisins. Fyrirtækið hefur vaxið töluvert frá þeim tíma og verkefnin orðin fleiri og meira spennandi. Þegar mér bauðst að gerast fjármálastjóri GOOD GOOD þá fannst mér ég ekki geta sleppt því að taka þátt í þeirri spennandi uppbyggingu sem framundan er hjá GOOD GOOD.“

Garðar Stefánsson, framkvæmdastjóri GOOD GOOD:

„Það er mikill styrkur í því að fá Kjartan Þórðarson í fullt starf hjá GOOD GOOD sem fjármálastjóra GOOD GOOD samstæðunnar. Kjartan hefur verið viðloðandi rekstur GOOD GOOD frá upphafi og þekkir sögu félagsins vel og þann vöxt sem hefur átt sér stað."