Kristinn Árni Lár Hróbjartsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri alþjóðlega loftslagsfyrirtækisins Running Tide á Íslandi og mun hann stýra daglegri starfsemi þess hér á landi. Running Tide var stofnað fyrir fimm árum síðan á austurströnd Bandaríkjanna en hóf nýverið starfsemi á Íslandi fyrir milligöngu Transition Labs.

Running Tide er sjávartæknifyrirtæki á sviði kolefnisförgunar. Fyrirtækið hefur þróað tækni til að örva náttúrulega hæfni sjávarins við að fjarlægja kolefni varanlega úr andrúmsloftinu.

Í tilkynningu segir að áformað sé að starfsemi Running Tide hér á landi fari á fullt strax í sumar en hún felur í sér heilmikil umsvif í hafnarstarfsemi, framleiðslu og útgerð. Á meðal fjárfesta að baki félaginu er Davíð Helgason, stofnandi Unity, en hann er einnig stofnandi Transition Labs ásamt Kjartani Erni Ólafssyni frumkvöðli og tæknifjárfesti. Meðal annarra fjárfesta eru Lowercarbon Capital, vísisjóður á sviði loftlagsmála, Scott Belsky, stofnandi Behance og Caterina Fake, stofnandi Flickr.

Sjá einnig: Davíð og Kjartan stofna Transition Labs

Kristinn Árni starfaði áður sem yfirmaður vörustjórnunar hjá Sotheby‘s uppboðsfyrirtækinu í New York, þar sem hann leiddi miklar breytingar á skipulagi og tækninotkun þess í samræmi við stefnu nýrra eigenda, en félagið var keypt og afskráð úr bandarísku kauphöllinni NYSE árið 2019 af franska milljarðamæringnum Patrick Drahi.

Þar áður var Kristinn Árni framkvæmdastjóri rekstrar hjá hugbúnaðarfyrirtækinu Gangverki, ráðgjafi hjá Kolibri og forstöðumaður rekstrar hjá QuizUp. Kristinn Árni er stofnandi og ritstjóri nýsköpunarvefsins Northstack auk þess að vera formaður stjórnar sprota- og nýsköpunarsjóðsins Kríu. Kristinn Árni er með BS gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands.

„Það eru vissulega viðbrigði að fara frá Sotheby‘s, einu elsta fyrirtæki heims sem sérhæfir sig í uppboði á einstökum og sjaldgæfum eignum, yfir í loftslagstækni, en störfin eiga það þó bæði sameiginlegt að vera flókin viðfangsefni sem krefjast góðs skipulags og mannauðs. Í grunninn snýst stjórnun og uppbygging á tækni um fólk, og hvernig hægt er að blanda saman sérfræðingum úr mismunandi áttum – á sviði tækni, hönnun, rekstri, fjármálum og lögfræði – til að búa til endaafurð sem nær fram markmiðum félagsins. Ég bý að þeirri reynslu frá Sotheby‘s að hafa unnið í alþjóðlegu umhverfi þvert á tímabelti, sérþekkingu, menningu og tungumál sem mun vafalaust nýtast vel í þessu starfi,“ segir Kristinn Árni Lár nýr framkvæmdastjóri íslenskrar starfsemi Running Tide.

Meðal viðskiptavina Running Tide eru alþjóðleg stórfyrirtæki eins og Stripe og Shopify sem fjárfest hafa í kolefnisförgun með þessum nýju aðferðum.