Sigurður Ágúst Sigurðsson, framkvæmdastjóri Happdrættis DAS til 33 ára, mun láta af störfum í maí. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Stjórn félagsins hefur ákveðið að ráða Valgeir Elíasson sem nýjan framkvæmdastjóra, og mun hann starfa við hlið fráfarandi forstjóra fram í maí.

Valgeir þekkir vel til starfa Happdrættis DAS, en hann starfaði sem deildarstjóri bókhalds- og launadeildar Hrafnistuheimilanna, en bæði happdrættið og Hrafnistu-heimilin starfa undir hatti Sjómannadagsráðs. Valgeir hefur unnið hjá Hrafnistu-heimilunum í 11 ár en þar á undan vann hann hjá KPMG og Slysavarnafélaginu Landsbjörg.

Á þeim rúmum 69 árum sem Happdrætti DAS hefur starfað hefur það verið fjárhagslegur bakhjarl í allri uppbyggingu Hrafnistuheimilanna auk þess sem 40% af hagnaði happdrættisins rann til uppbyggingar dvalarheimila aldraða út um land allt í 25 ár.

Valgeir Elíasson, framkvæmdastjóri Happdrættis DAS:

„Ég veit að Happdrætti DAS hefur skilað góðu búi til þeirra málefna sem það styrkir, þ.e.a.s Hrafnistuheimilin á höfuðborgarsvæðinu. Mikið grettistak hefur verið unnið í að nútímavæða hjúkrunarheimilin og gera þau þannig að þeim sem dveljast þar líður mjög vel. Happdrættið hefur stutt einna helst við þessa nútímavæðingu og mitt starf mun snúast um að halda þessum stuðningi áfram.“