Laufey Guðmundsdóttir hefur verið ráðin mannauðsstjóri Icewear. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Laufey er með BA gráðu í tómstunda- og félagsmálafræðum frá Háskóla Íslands, diploma í ferðamálafræðum frá Hólum, meistaragráðu í forystu og stjórnun frá Háskólanum á Bifröst og viðurkenndur sérfræðingur í fræðslustjórnun frá Akademias. 

Laufey segir verkefnin fjölmörg hjá Icewear.
,,Það hefur verið skemmtileg og áhugaverð reynsla að hefja störf hjá Icewear. Fyrst sem verslunarstjóri og síðar mannauðsstjóri. Verkefnin eru fjölmörg hjá ört stækkandi fyrirtæki og ljóst að við okkur blasa margar áskoranir. Við erum sérlega rík af mannauði, valinn maður í hverju rúmi sem á stóran þátt í velgengni Icewear og þeirri vegferð sem Icewear er á, bæði á innlendum og erlendum mörkuðum. Ástríða fyrir starfinu og einstakri vöru er drifkraftur Icewear. Því mun ég gera mitt besta að hlúa að þessum krafti, hlúa að fólkinu með hvatningu og gleði að leiðarljósi. Það er gaman í okkar herbúðum,“ segir Laufey.

Icewear er eitt stærsta vörumerkið í útivistarfatnaði á íslenskum markaði. Starfsfólk telur í dag um 260 manns en verslanir Icewear eru 22 talsins og staðsettar hringinn í kringum landið.

Aðalsteinn I. Pálsson forstjóri Icewear:

,,Við fögnum því að fá svo reynslumikinn mannauðsstjóra sem Laufey sannarlega er til þessa að leiða starfið einmitt núna þegar fyrirtækið hefur gengið í gegnum svo öran vöxt sem raun ber vitni. Mannauðurinn er grunnstoð í hverju fyrirtæki og því mikilvægt að hún sé styrk. Icewear leggur áherslu á að stuðla að jákvæðu umhverfi og virkri þátttöku hvers og eins með það markmið að auka ánægju og skilvirkni heildarinnar. Laufey hefur lagt upp með menntastefnu og námskeiðahald fyrir starfsfólk og stuðlar um leið að sífelldri þróun á gildum og stefnum félagsins í mannauðsmálum og sjálfbærni.”