Daníel Svavarsson, sem lét nýlega af stöfum sem aðalhagfræðingur Landsbankans, hefur verið skipaður skrifstofustjóri á skrifstofu verðmætasköpunar í menningar- og viðskiptaráðuneytinu. Lilja Dögg Alfreðsdóttir, ferðamála-, menningar- og viðskiptaráðherra, skipar í embættið.

Daníel hefur um tveggja áratuga reynslu af efnahagsgreiningum og starfaði um fimm ára skeið í Seðlabanka Íslands og gegndi stöðu aðalhagfræðings Landsbankans síðastliðin 12 ár. Daníel er með  meistaragráðu í hagfræði og lauk doktorsprófi í viðskiptafræði frá Gautaborgarháskóla árið 2005.

„Skrifstofa verðmætasköpunar vinnur þvert á málaflokka ráðuneytisins með verðmætasköpun, samkeppnishæfni og sjálfbærni að leiðarljósi. Skrifstofan er leiðandi í greiningu og miðlun, þ.m.t. hagrænum rannsóknum á þeim málaflokkum er heyra undir ráðuneytið. Kemur skrifstofan þannig að stefnumótun á fjölbreyttum málefnasviðum ráðuneytisins og tengir saman menningu, viðskipti, fjölmiðla og ferðaþjónustu,“ segir í tilkynningu menningar- og viðskiptaráðuneytisins.