Linda Kolbrún Björgvinsdóttir hefur verið sett framkvæmdastjóri háttsemiseftirlits Seðlabanka Íslands.

Hún hóf störf hjá Fjármálaeftirlitinu sem lögfræðingur árið 2007 og tók svo við sem forstöðumaður lagalegs eftirlits Fjármálaeftirlitsins árið 2018.

Linda hefur starfað sem forstöðumaður lagalegs eftirlits hjá Seðlabanka Íslands frá 2020. Hún er með BA-gráðu í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík, MA-gráðu í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík og B.Ed-gráðu frá Kennaraháskóla Íslands.