María Kristín, framkvæmdarstjóri viðskiptaskrifstofu breska sendiráðsins, var kjörinn formaður Ungra athafnakvenna á aðalfundi félagsins fyrir helgi. Hún mun gegna þeirri formennsku fyrir starfsárið 2023-2024.

Lísa Rán Arnórsdóttir, fráfarandi formaður og María Kristín Guðjónsdóttir nýkjörinn formaður UAK.
© Gunnhildur Lind Photography (Gunnhildur Lind Photography)

Kosið var einnig í nýja stjórn og þær sem hlutu kjör eru Bryndís Rún Baldursdóttir, Kamilla Tryggvadóttir, Sóley Björg Jóhannsdóttir og Ólöf Kristrún Pétursdóttir Blöndal. Frá fyrra starfsári sitja áfram þær Aðal­heiður Júlí­rós Óskars­dótt­ir, Hug­rún Elvars­dótt­ir og María Krist­ín Guðjóns­dótt­ir.

Hugrún Elvarsdóttir, verkefna- og fræðslustjóri UAK.
© Gunnhildur Lind Photography (Gunnhildur Lind Photography)

Þær tvær konur sem fengu næst flest atkvæði í kosningum til stjórnar verða því varamenn til eins árs. Það eru þær Gunnlaug Helga Ásgeirsdóttir og Sigríður Borghildur Jónsdóttir.

Niðurstöður kosningar kynntar
© Gunnhildur Lind Photography (Gunnhildur Lind Photography)

Með viðburðum sínum segist UAK vilja hjálpa félagskonum að auka styrkleika sína og er markmiðið með hverjum viðburði að fylla þátttakendur eldmóði. Síðastliðið starfsár hélt félagið samtals 17 viðburði ásamt því að halda úti samstarfi við Opna háskólann í Reykjavík, KVAN, Akademias og Dale Carnegie. Ný dagskrá verður kynnt haustið 2023.