Árni Jón Eggertsson og Þorvaldur Jón Henningsson hafa tekið til starfa hjá rekstrarlausnum Advania.

Árni Jón Eggertsson er nýr tækni- og þjónustustjóri á rekstrarlausnasviði Advania. Hann er hagfræðingur að mennt með áralanga reynslu úr upplýsingatæknigeiranum. Hann starfaði áður sem aðstoðarframkvæmdastjóri skýja- og rekstrarlausna Opinna kerfa og þar á undan sem framkvæmdastjóri Reykjavík DC gagnaversins. Hann hefur einnig unnið hjá Skyggni, Skýrr og Íbúðalánasjóði.

„Advania hefur verið leiðandi fyrirtæki á þessu sviði um langa hríð og það er gaman að ganga til liðs við svona öflugan hóp fagfólks. Þegar ég hóf störf í þessum geira heyrði það til undantekninga að útvista rekstri upplýsingakerfa en með aukinni sjálfvirkni- og skýjavæðingu er staðan allt önnur. Kvikt rekstrarumherfi kallar á lausnir sem skalast upp og niður eftir umfangi hvers og eins. Ég hlakka til að takast á við ný verkefni á þessu sviði og vinna náið með viðskiptavinum Advania,” segir Árni Jón.

Þorvaldur Jón Henningsson hefur verið ráðinn deildarstjóri og leiðir einingu innan rekstrarlausna sem fer meðal annars fyrir vöruþróun, sjálfvirknivæðingu, þjónustuvöktun og ferlum. Þorvaldur hefur rúmlega 20 ára stjórnunarreynslu úr upplýsingatækni. Hann starfaði síðast sem forstöðumaður netöryggisþjónustu Deloitte í Belgíu. Þorvaldur er með meistaragráðu í stjórnun og stefnumótun frá Háskóla Íslands þar sem hann hefur jafnframt verið stundakennari undanfarin ár.

„Það er mér sönn ánægja að ganga til liðs við Advania enda hefur fyrirtækið skýra sýn á þjónustuhlutverk sitt og metnað til að vera í farabroddi við að hjálpa viðskiptavinum sínum að ná árangri með tækninni. Ég hlakka mikið til að vinna með einstaklega hæfu starfsfólki fyrirtækisins að frekari framförum,” segir Þorvaldur Jón.