Lyfjalíftæknifyrirtækið Alvotech hefur ráðið Berglindi Guðmundsdóttur héraðsdómslögmann í starf forstöðumanns á lögfræðisviði og sem regluvörð félagsins.

Berglind kemur til Alvotech frá lögmannsstofunni BBAFjeldco, þar sem hún gegndi m.a. starfi regluvarðar Alvotech frá skráningu félagsins á Nasdaq markaðinn í Bandaríkjunum og First North-markaðinn á Íslandi í júní 2022 og á aðalmarkað Kauphallarinnar í síðasta mánuði. Hún var einnig regluvörður Ölgerðarinnar og Nova klúbbsins frá skráningu félaganna á Aðalmarkað Nasdaq Iceland.

Berglind starfaði í um 15 ár hjá Landsbankanum, annars vegar í lögfræðiþjónustu fyrirtækjasviðs við ráðgjöf tengda fjármögnun fyrirtækja og hins vegar í regluvörslu Landsbankans í eftirliti með verðbréfaviðskiptum, aðgerðum gegn markaðssvikum og ráðgjöf um stjórnarhætti.

„Það er mikil tilhlökkun að ganga til liðs við teymi Alvotech og þjóna á annað þúsund hluthöfum félagsins innanlands og utan, eftir að hafa kynnst fyrirtækinu vel á síðasta ári. Fyrirtækið starfar í fjölbreyttu alþjóðlegu samkeppnisumhverfi og þetta er eina íslenska félagið sem er með skráð hlutabréf í Bandaríkjunum og á Íslandi samhliða. Það eru því sannarlega spennandi verkefni framundan,“ segir Berglind í tilkynningu.

Berglind er héraðsdómslögmaður, með BA og ML próf í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík. Hún er gift Vilhjálmi Reyr Þórhallssyni, aðstoðarsaksóknara hjá lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu og þau eiga tvo syni.