Arnar Bentsson hefur verið ráðinn forstöðumaður stafrænnar þróunar hjá Isavia en hann hefur starfað hjá félaginu sem stafrænn ráðgjafi frá því í ágúst síðastliðnum. Hann tekur við starfinu af Raquelitu Aguilar sem hvarf nýverið til annarra starfa. Arnar var valinn úr hópi tæplega fimmtíu umsækjenda, að því er kemur fram í tilkynningu.

Arnar er með M.Sc. gráðu í Management of Innovation and Business Development (stjórn nýsköpunar og viðskiptaþróunar) frá Copenhagen Business School (CBS) og B.Sc. gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík. Hann starfað við stafræn umbreytingaverkefni hjá Storytel, Vodafone og Telenor í Danmörku.

„Reynsla Arnars og þekking mun nýtast vel í áframhaldandi þróun á málaflokki stafrænnar þróunar hjá Isavia,“ segir Bjarni Örn Kærnested, framkvæmdastjóri stafrænnar þróunar og upplýsingatækni hjá Isavia. „Við hlökkum öll til að vinna með honum að því að móta og innleiða stafræna framtíð hjá Isavia.“