Kristófer Páll Lentz hefur hafið störf hjá Kóða ehf. sem sölu- og markaðsstjóri Keldunnar og Hluthafaskrár. Síðustu ár hefur hann starfað hjá Nathan & Olsen hf. sem vörumerkjastjóri á dagvörusviði. Þar bar hann meðal annars ábyrgð á uppbyggingu og markaðssetningu þekktra vörumerkja á neytendamarkaði.

Kristófer er viðskiptafræðingur að mennt og hefur lokið meistaranámi í Strategic Market Creation frá Copenhagen Business School.

„Það er mikill heiður að fá tækifæri til að taka þátt í því öfluga starfi og þeirri vegferð sem Kóði er á sem leiðandi fyrirtæki á sviði fjármálalausna. Ég er gríðarlega spenntur fyrir því að leiða sölu og markaðsmál Keldunnar og Hluthafaskrár sem hafa verið í stöðugri þróun og alveg ljóst að þessar vörur sem og aðrar vörur Kóða eiga mikið inni,“ er haft eftir Kristófer í tilkynningu.

Kóði er íslenskt hugbúnaðarfyrirtæki með sérþekkingu á fjármálasviði og þróar fjártæknilausnir fyrir sérfræðinga á fjármálamarkaði. Vöruframboð Kóða fer stækkandi en félagið segist einblína á að bæta ákvarðanir í íslensku viðskiptalífi með þróun lausna sem byggja á vönduðum gögnum og vinnslu þeirra.

„Fyrir stuttu síðan gáfum við út nýjar útgáfur af Keldunni og Hluthafaskra.is sem eru lausnir sem ættu að höfða til allra fyrirtækja á Íslandi. Við erum ánægð að fá Kristófer til liðs við okkur til að kynna lausnirnar fyrir mögulegum viðskiptavinum og taka þátt í áframhaldandi vöruþróun í takt við kröfur viðskiptavina,“ segir Thor Thors, framkvæmdastjóri Kóða.