Oana Savu hefur verið ráðin nýr framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar (e. Chief Strategy Officer) hjá Dohop og mun bera ábyrgð á stefnumótun og þróun félagsins ásamt samningum við samstarfsaðila.

Oana mun hafa aðsetur í Genf í Sviss en hjá Dohop starfa um 60 starfsmenn á Íslandi auk 15 annarra á starfstöðvum félagsins víðs vegar um heim. Dohop hyggst ráða um 15 starfsmenn til viðbótar á árinu.

„Markmiðið með ráðningu hennar er að styrkja enn frekar að tækni Dohop sé leiðandi í ferðatengingum fyrir samgöngugeirann hvort sem það er fyrir flugfélög, lestarsamgöngur eða aðra ferðamáta,“ segir í tilkynningu.

Oana hefur yfir sextán ára reynslu úr fluggeiranum en hún starfaði síðast hjá IATA, Alþjóðasamtökum flugfélaga þar sem hún var yfirmaður samstarfs flugfélaga (e. Senior Manager, Future Interline Partnerships). Þar áður starfaði Oana hjá Amadeus, eins stærsta tæknifyrirtæki í heimi sem sérhæfir sig í flug- og ferðageiranum.

Davíð Gunnarsson, forstjóri Dohop:

„Dohop hefur vaxið til muna undanfarin misseri og þjónustar nú yfir 50 flugfélög. Oana býr yfir gríðarlegri reynslu og það er mikill fengur að fá hana í okkar raðir. Reynsla hennar frá IATA, Alþjóðasamtökum flugfélaga mun hjálpa okkur til enn frekari vaxtar.“

Oana Savu, nýr framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Dohop:

„Samstarf milli flugfélaga um tengingar á milli leiðarkerfa er nauðsynlegt til að stækka net og veita ferðamönnum betri tengingar. Það er þörf á meiri nýsköpun í þessum geira og ég hef mikla trú á að tækni Dohop verði leiðandi í heiminum og geti boðið flutningsaðilum byltingarkenndar lausnir til að auka og einfalda ferðatengingar. Ég er mjög spennt að ganga til liðs við teymi Dohop og taka þátt í vexti félagsins,“ segir

Dohop gerir flugfélögum kleift að selja tengiflug með öðrum flugfélögum og leyfir þeim að fjölga þannig áfangastöðum og þjóna fleiri farþegum en ella. Tækni Dohop er notuð af flugfélögum og samtökum flugfélaga um allan heim á borð við easyJet, Transavia, Air France, Jetstar og SkyTeam.