Það eru bráðum 13 ár frá því ferðavefurinn Túristi fór í loftið og þær mörg þúsund greinar sem þar hafa birst hafa allar verið skrifaðar af stofnanda og ritstjóra síðunnar, Kristjáni Sigurjónssyni.

Nú er komið að kaflaskilum því Óðinn Jónsson, fyrrverandi fréttastjóri RÚV, gengur til liðs við Túrista um miðjan júní og verður blaðamaður vefmiðilsins.

Óðinn starfaði lengi hjá Ríkisútvarpinu sem fréttamaður og þáttastjórnandi, fréttamaður á Norðurlöndum, þingfréttamaður, fréttastjóri hljóðvarps og síðan RÚV. Síðustu þrjú árin hefur Óðinn unnið sem ráðgjafi hjá samskiptastofunni Aton.JL, einkum að samskiptamálum og fjölmiðlaráðgjöf fyrir stækkunarverkefni Isavia á Keflavíkurflugvelli í samstarfi við breska byggingar- og ráðgjafafyrirtækið Mace.

Kristján Sigurjónsson, ritstjóri og útgefandi Túrista:

„Mér þykir mikill fengur í Óðni, sem er í hópi reyndustu fjölmiðlamanna landsins, og ég er honum þakklátur fyrir að taka stökkið. Það verður spennandi að vinna með honum aftur en við ræddum um árabil ferðamál frá ýmsum hliðum vikulega á Morgunvakt Rásar 1, á meðan hann stýrði þættinum.

Sú ákvörðun að breyta Túrista í áskriftarvef á sínum tíma heppnaðist og nú er kominn grunnur að öflugri útgáfu. Það má líka ljóst vera að fjölmiðill sem seldur er í áskrift á allt undir færum og reyndum blaðamönnum. Ráðning Óðins er því mikilvægur liður í því að breikka efnistökin enda býður umfjöllun um ferðaþjónustu og ferðalög upp á marga möguleika.“

Óðinn Jónsson, nýr blaðamaður Túrista:

„Mér þykir þetta afar spennandi tækifæri. Ég held að áskriftarvefur eins og Túristi, sem leggur rækt við mikilvægt sérsvið, eigi framtíð fyrir sér. Kristján hefur unnið þrekvirki í sínu starfi en ég vonast til að styrkja vefinn. Það er auðvitað frábært að fá tækifæri til að spreyta sig aftur í blaðamennsku og ég er þakklátur fyrir það.”