Gagnadrifna markaðsstofan Digido hefur ráðið til sín Ómar Þór Ómarsson í stöðu framkvæmdastjóra vaxtar. Í tilkynningu kemur fram að Ómar muni meðal annars leiða nýtt B2B teymi (markaðssetning fyrirtækja til annarra fyrirtækja) með það markmið að hjálpa íslenskum fyrirtækjum með alþjóðlega stefnumótun.

Síðastliðin átta ár hefur Ómar gegnt stöðu markaðsstjóra hjá fjártæknifyrirtækinu Meniga. Áður starfaði Ómar sem ráðgjafi á fyrirtækjasviði hjá Deloitte í Sviss og viðskiptastjóri hjá Creditinfo.

Ómar er með gráðu í fjármálaverkfræði frá Háskólanum í Reykjavík og gráðu í stafrænni markaðssetningu frá Columbia Háskóla.

„Það er mikið af spennandi fyrirtækjum og hugviti að krauma á Íslandi í dag með gríðarleg tækifæri til að vaxa út fyrir landsteinana. Við Íslendingar erum rosalega öflug í að búa til frábærar vörur og ná árangri á Íslandi en mörg fyrirtæki lenda á vegg þegar þau ætla sér að vaxa erlendis. Þar skiptir öllu máli að þekkja markhópinn og hans hegðunarmynstur í smáatriðum og móta þannig úthugsaða strategíu. Enn fremur þarf að nota réttu tólin og styðjast við gögn til að keyra herferðir og taka upplýstar ákvarðanir,“ segir Ómar.

„Ég er virkilega spenntur að ganga til liðs við öflugt teymi sérfræðinga hjá Digido og starfa náið með íslenskum fyrirtækjum til að ná árangri. Þar er lykilatriði að vinna með nýjar aðferðir sem hafa verið að ryðja sér til rúms í B2B markaðssetningu og hafa ef til vill ekki verið nýttar til hlítar hér á landi.”

Meðal samstarfsaðila Digito eru Arion banki, Men & Mice, 50 Skills, Pay Analytics og Origo auk fjölda annarra. Hjá Digido starfa ellefu sérfræðingar á sviði markaðs- og auglýsingaráðgjafar með áherslu á gagnadrifna markaðssetningu.