Óskar Sveinn Friðriksson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Smyril Line Cargo á Íslandi og mun hefja störf 8. ágúst næstkomandi. Óskar tekur við starfinu af Lindu Gunnlaugsdóttir sem var nýlega ráðin framkvæmdastjóri útflutningsfyrirtækisins Bacco Seaproducts.

Óskar hefur verið framkvæmdastjóri KAPP ehf. undanfarin þrjú ár þar sem hann hefur stýrt stækkandi fyrirtæki í gegnum krefjandi tíma. Árin þar á undan stýrði Óskar fjölmörgum uppbyggingarverkefnum í flutningageiranum og hefur yfir tveggja áratuga reynslu á því sviði.

Óskar Sveinn Friðriksson:

„Ég hef á mínum ferli fengið tækifæri í ýmsum stjórnendastöðum víða um heim innan flutningageirans og síðastliðin þrjú ár stýrt því skemmtilega fyrirtæki KAPP ehf. Flutningabransinn er mjög spennandi á Íslandi og það sem Smyril Line hefur verið að gera hér á landi er einstakt. Þegar mér gafst svo tækifæri á að taka þátt í áframhaldandi vexti Smyril Line á Íslandi þá var ekki annað hægt en að segja já takk við því. Ég mun kveðja KAPP með söknuði en á sama tíma hlakka ég mikið til nýrra verkefna.“

Jens Meinhard Rasmussen, stjórnarformaður Smyril Line Ísland:

„Við erum mjög ánægð að fá Óskar í öflugan hóp starfsmanna Smyril Line. Hann hefur sýnt það á síðustu árum að hann er öflugur stjórnandi í alþjóðlegu umhverfi sem mun nýtast okkur vel í áframhaldandi vexti.“