Reynir B. Eiríksson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Vélfags ehf. Reynir tekur við af Bjarma Sigurgarðarssyni og Ólöfu Ýr Lárusdóttur sem hafa verið framkvæmdastjórar síðan þau stofnuðu fyrirtækið árið 1995. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Breyting hefur einnig verið gerð á framkvæmdastjórn félagsins, en í henni verða auk Reynis, Bjarmi Sigurgarðarsson þróunarstjóri, Sigrún Á. Sigmundsdóttir fjármálastjóri, Reimar Viðarsson þjónustustjóri og Ragnar Guðmundsson sölustjóri.

Fyrst í stað þjónustaði Vélfag fyrirtæki í sjávarútvegi en fljótlega hófu starfsmenn fyrirtækisins að þróa og framleiða vélar fyrir fiskvinnslu. 

Rússneska sjávarútvegsfyrirtækið Norebo keypti 54,5% hlut í Vélfagi ehf í janúar í fyrra. Bjarmi og Ólöf Ýr eiga 45,5 prósent í félaginu.

Reynir hefur starfað fyrir Vélfag sem framleiðslustjóri. Reynir hefur langa reynslu af stjórnun sem framkvæmdastjóri Ferrozink og framleiðslustjóri bæði hjá Norðlenska og Skinnaiðnaði.

Bjarmi og Ólöf stofnendur Vélfags:

„Við höfum rekið fyrirtækið frá stofnun og erum mjög sátt. Það er mjög ánægjulegt að sjá á hvaða vegferð fyrirtækið er og að fá jafn öflugt fólk í framkvæmdastjórn þess og raun ber vitni. Segja má að við höfum verið vakin og sofin yfir félaginu frá fyrsta degi en nú getum við sleppt hendinni af daglegum rekstri og snúið okkur alfarið að frekari vöruþróun.“

Reynir B. Eiríksson framkvæmdastjóri Vélfags:

„Vélfag er mjög áhugavert fyrirtæki og mér þykir ánægjulegt að fá að taka þátt í frekari uppbyggingu þess. Ég hef mikla trú á félaginu, afar spennandi tímar eru framundan og ég er sannfærður um að Vélfag getur orðið gríðarlega öflugt,“ segir Reynir.

Finnbogi Baldvinsson stjórnarformaður Vélfags:

„Vélfag er öflugt fyrirtæki sem hefur mikla möguleika til vaxtar. Það skref sem er stigið með ráðningu í helstu stjórnunarstöður styrkir félagið verulega,“ segir Finnbogi. „Að mínu viti er Vélfag vel geymt leyndarmál á Eyjafjarðarsvæðinu. Þar hefur verið unnin mjög mikil þróunarvinna sem ekki hefur farið hátt. Stoðir fyrirtækisins eru orðnar mjög sterkar sem er nauðsynlegt á þeim spennandi tímum sem framundan eru.“