Reza Mirza hefur verður ráðinn forstjóri Icelandic Water Holdings samstæðunnar. Reza hefur starfað sem forstjóri Icelandic Glacial í Bandaríkjunum síðustu átta árin en tók formlega við sem forstjóri eignarhaldsfélagsins Icelandic Water Holdings þann 1. september síðastliðinn.

Jón Ólafsson, stofnandi og stjórnarformaður Icelandic Water Holdings, segist í tilkynningu hafa fulla trú á að Reza leiði félagið inn í framtíðina með ástríðu og drifkrafti og flyti fyrir frekari vexti og arðsemi.

„Reza hefur á starfsferli sínum hjá fyrirtækinu markað langtímastefnu og framfylgt henni með ágætum. Hann hefur laðað til fyrirtækisins starfsmannateymi á heimsmælikvarða, sem stendur að baki miklum vexti og aukinni arðsemi fyrirtækisins,“ er haft eftir Jóni.

„Icelandic Glacial fæst nú á 54.000 sölustöðum í Bandaríkjunum; á 400 lúxushótelum og nær öllum flugvöllum. Áhersla Reza á að byggja upp úrvalsteymi hefur skapað framúrskarandi fyrirtækjamenningu og byggt upp vörumerkið, þannig að það er nú þriðja stærsta innflutta „premium water“ á Bandaríkjamarkaði.“

Sjá einnig: „Vöxturinn langt umfram aðra“

Reza segir að Icelandic Glacial verði áfram byggt upp með áherslu á að skilgreina vöruna sína sem „premium“ vatn á öllum alþjóðamörkuðum.

„Ásamt stofnendum fyrirtækisins, Jóni og Kristjáni, er ég spenntur fyrir framtíðinni, þar sem við munum halda áfram að byggja upp Icelandic Glacial á heimsmarkaði,“ segir Reza. „Við erum með einstakt vörumerki, öflugt teymi og ört vaxandi tryggan hóp viðskiptavina og okkar dýrmætu uppsprettulind í Ölfusinu, sem skilar okkur hreinasta vatni í heimi.“