Rósa Dögg Ægisdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri hugbúnaðarhússins Reon. Elvar Örn Þormar fráfarandi framkvæmdastjóri og einn stofnenda Reon mun í framhaldinu leiða fjárfestingastarfsemi fyrirtækisins. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Rósa Dögg hefur síðastliðin fjögur ár starfað sem þróunarstjóri Reon og setið í framkvæmdastjórn félagsins undanfarin þrjú ár. Í starfi sínu er hún í tilkynningunni sögð hafa stýrt stafrænum verkefnum fyrir mörg af stærstu fyrirtækjum landsins, meðal annars fyrir Krónuna, N1, ELKO og Vörð auk opinberra stofnana. Þá situr hún í stjórn Reon Ventures sem fjárfestir í og aðstoðar sprotafyrirtæki á hugmyndastigi. Rósa Dögg er með B.S. gráðu í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands.

„Ég hlakka mjög til að takast á við þetta spennandi og krefjandi verkefni. Starfsemi Reon hefur þróast mikið á liðnum árum og ég hef verið svo heppin að hafa spilað stórt hlutverk í þeirri vinnu ásamt Elvari. Ég bý að þeirri reynslu og mun byggja á henni. Fram undan eru spennandi tímar enda er mikil eftirspurn á markaði fyrir stafrænar lausnir. Við höfum sett okkur skýr markmið fyrir komandi ár og með góðu starfsfólki munum við fylgja þeim markmiðum eftir,“ er haft eftir Rósu Dögg.

Elvar Örn Þormar, fráfarandi framkvæmdastjóri:

„Rósa Dögg hefur gegnt lykilhlutverki í vexti Reon á undanförnum árum, hún er framúrskarandi leiðtogi fyrir þróunarteymin okkar og afrakstur af framlagi hennar hefur hvort tveggja í senn bætt hag viðskiptavina okkar og gert Reon að einstökum vinnustað. Samhliða því sem hún tekur við starfi framkvæmdastjóra hlakka ég til að takast á við ný verkefni og sinna þróun Reon og dótturfélaga til lengri tíma.“