Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur (OR) hefur ráðið Sævar Frey Þráinsson, bæjarstjóra á Akranesi, í starf forstjóra fyrirtækisins og mun hann hefja störf þann 1. apríl næstkomandi, að því er kemur fram í tilkynningu. Sævar Freyr, sem er fyrrum forstjóri Símans og 365 miðla, var valinn úr hópi 21 umsækjanda.

Sævar Freyr lýkur störfum sem fyrir Akraneskaupstað í lok mars. Í tilkynningu bæjarfélagsins segir að nú hefjist leit að nýjum bæjarstjóra. Steinar Adolfsson, sviðsstjóri fjármála- og þjónustusviðs, mun gegna starfinu eftir að Sævar lýkur störfum og þar til nýr bæjarstjóri tekur til starfa.

Tilkynnt var í september síðastliðnum um að Bjarni Bjarnason, núverandi forstjóri Orkuveitunnar, hygðist láta af forstjórastarfinu eftir tólf ára starf. Hann tók við stöðunni þann 1. mars 2011. Bjarni mun láta formlega af störfum þegar Sævar Freyr byrjar.

„Sævar Freyr býr yfir mikilli reynslu og þekkingu eftir að hafa stýrt stórum fyrirtækjum og nú síðast sveitarfélagi. Hann hefur meðal annars starfað sem forstjóri Símans, 365 miðla og nú síðast sem bæjarstjóri,“ segir stjórn OR í tilkynningu.

Orkuveita Reykjavíkur er í 93,5% eigu Reykjavíkurborgar en Akraneskaupstaður á 5,5% hlut og Borgarbyggð tæplega eitt prósent hlut.

„Þar sem Akraneskaupstaður er einn eigenda OR, hefur Sævar Freyr haft hlutverki að gegna gagnvart fyrirtækinu, sem bæjarstjóri. Hann hefur meðal annars stutt við framgang Carbfix og nýtt reynslu sína og bakgrunn í verkefnum tengdum Ljósleiðaranum.“

Sævar er með cand.oecon gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands með áherslu á markaðsmál. Starfsreynsla Sævars telur hátt í þrjátíu ár og hefur hann verið stjórnandi nær allan þann tíma. Hann starfaði hjá Símanum í 18 ár og þar af sjö ár sem forstjóri. Hann var forstjóri 365 miðla í þrjú ár en frá árinu 2017 hefur hann gegnt stöðu bæjarstjóra í heimabæ sínum Akranesi.

„Ég lít fyrst og fremst á Orkuveituna sem þekkingarfyrirtæki sem er afar ríkt af mannauði. Mitt hlutverk er að styðja þetta öfluga fólk til þess að ná árangri bæði í starfi og fyrir samfélagið allt. Alla daga munum við vinna að því að auka lífsgæði og er nú þegar horft til þeirra verka úti í hinum stóra heimi. Tækifærin eru svo sannarlega til staðar. Það er því mikið tilhlökkunarefni að fá að kynnast starfsfólki Orkuveitunnar frekar og takast á við þau mikilvægu verkefni sem fram undan eru,“ segir Sævar Freyr.

„Það er mikið fagnaðarefni fyrir Orkuveituna að fá Sævar Frey til forystu. Hann þekkir fyrirtækið og verkefni þess mjög vel og hefur langa og góða reynslu af umfangsmiklum stjórnunarstörfum, bæði í einkageira og hjá hinu opinbera. Þótt Sævar Freyr taki við góðu búi af Bjarna Bjarnasyni, sem leiddi fyrirtækið út úr fjárhagsþrengingum eftir hrun, eru margar áskoranir framundan í starfi Orkuveitunnar, ekki síst í loftslagsmálunum, þar sem þarf að ná skjótum og miklum árangri. Ég hlakka til að starfa með Sævari Frey og öllu starfsfólki samstæðunnar við að takast á við þær,“ segir Gylfi Magnússon stjórnarformaður OR.