Sigríður Sigurðardóttir var kjörin í stjórn Frumtak Ventures á aðalfundi sjóðsins í gær. Gunnar Engilbertsson og Magnús Torfason voru endurkjörnir en þeir hafa setið í stjórninni frá stofnun Frumtaks árið 2015. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

Sigríður kemur inn í stjórnina fyrir Ásthildi Otharsdóttur, fráfarandi stjórnarformann, sem bætist í hóp eigenda og fjárfestingastjóra hjá Framtaki. Magnús tekur við stjórnarformennskunni af Ásthildi.

Sigríður Sigurðardóttir er framkvæmdastjóri sölu- og þjónustusviðs Tesco Bank í Bretlandi. Hún hefur gegnt fjölbreyttum leiðtogahlutverkum á sviði nýsköpunar víða um heim, m.a. leitt stafræna umbreytingu hjá American Express International, þar sem hún starfaði í 14 ár í Bandaríkjunum, Bretlandi, Singapore og Ástralíu, sem og hjá Santander í Bretlandi og nú síðast Tesco Bank. Störf hennar hafa einkum falist í þróun og markaðssetningu stafrænna lausna sem miða að því að leysa þarfir viðskiptavina og auka þjónustustig. Á þessum tíma hefur hún leitt ýmis samstarfsverkefni við frumkvöðla á sviði stafrænnar þróunar og fjártækni og náð þar markverðum árangri.

Hún lauk doktorsprófi í viðskiptafræðum, á sviði leiðtogafræða og nýsköpunar, frá Manchester Business School, MBA frá IESE í Barcelona og BS próf í viðskiptafræðum frá Coastal Carolina University. Sigríður situr í stjórn Auto Trader Group PLC sem er skráð í kauphöllinni í London.

Magnús Torfason er dósent við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands og stýrir meistaranámi í nýsköpun og viðskiptaþróun. Hann var áður lektor við Harvard Business School og kenndi þar frumkvöðlafræði í MBA námi skólans. Hann hefur einnig haldið ýmis stjórnendanámskeið tengd nýsköpun og frumkvöðlafræði í Bandaríkjunum, Evrópu og Kína. Hann er stjórnarformaður Arctic Stone, situr í stjórn Handpoint og var einn af stofnendum þess fyrirtækis. Auk þess situr hann í ráðgjafaráði Snjallræðis og er varamaður í Vísinda- og tækniráði. Magnús lauk doktorsprófi í viðskiptafræði frá Columbia Business School og er með BS gráður í rafmagnsverkfræði og tölvunarfræði frá Háskóla Íslands.

Gunnar Engilbertsson er sjálfstætt starfandi ráðgjafi og fjárfestir. Hann er veitir bönkum, lífeyrissjóðum, fjárfestum og fyrirtækjum ráðgjöf á sviði fjármála og fjárfestinga auk þess að stýra eigin fjárfestingum. Fyrri störf Gunnars eru meðal annars Forstöðumaður í eignastýringu hjá slitabúi Glitnis hf., framkvæmdastjóri Landsbankans-Framtaks hf. og Íslenska hugbúnaðarsjóðsins hf. og sérfræðingur hjá Deloitte (Stoð-endurskoðun). Hann hefur setið í stjórnum fjölda fyrirtækja, bæði almenningshlutafélaga og félaga í einkaeigu. Gunnar er með BS próf í reikningshaldi og fjármálum frá Háskóla Íslands og hefur lokið prófi í verðbréfa.

Frumtak Ventures er umsýsluaðili vísisjóðanna Frumtaks I og Frumtaks II.