Sigþrúður Gunnarsdóttir hefur verið ráðin sem framkvæmdastjóri Forlagsins. Stjórn fyrirtækisins tilkynnti þetta á fundi með starfsfólki í morgun en framkvæmdastjóri félagsins, Egill Örn Jóhannsson, og fjármálastjóri, Þórhildur Garðarsdóttir, sögðu störfum sínum lausum fyrir mánuði síðan.

Staða fjármálastjóra hefur verið auglýst og hefur Þórhildur Garðarsdóttir fallist á að gegna starfinu þar til nýr stjórnandi hefur verið ráðinn, að því er kemur fram í tilkynningu.

Sigþrúður, sem tekur til starfa sem framkvæmdastjóri eftir viku, er menntuð í íslensku og bókmenntum og hefur starfað hjá Forlaginu frá stofnun þess, og þar áður hjá Eddu og Máli og menningu. Hún hefur unnið náið með mörgum íslenskum höfundum og er önnur tveggja ritstjóra Tímarits Máls og menningar. Hún hefur einnig átt sæti í stjórn Forlagsins um nokkurra ára skeið.

„Við fögnum því mjög að ein okkar öflugasta samstarfskona hefur fallist á að taka að sér þá auknu ábyrgð sem felst í starfi framkvæmdastjóra. Sigþrúður hefur sýnt það í störfum sínum að hún hefur brennandi áhuga á framgangi íslenskra bókmennta og við erum sannfærð um að starfið muni farast henni vel úr hendi,“ segir Halldór Guðmundsson, stjórnarformaður Forlagsins, af þessu tilefni.

Jón Heiðar og Stella til Forlagsins

Jón Heiðar Gunnarsson hefur verið ráðinn sem markaðsstjóri Forlagsins en hann tekur við stöðunni af Guðrúnu Norðfjörð sem óskaði eftir að láta af störfum í upphafi árs.

Jón Heiðar er menntaður í blaðamennsku og heimspeki en hefur einnig lært stafræna markaðssetningu og viðskipti á netinu. Undanfarin ár hefur hann starfað sem yfirmaður hjá auglýsingastofunni Sahara, þar sem Forlagið var meðal viðskiptavina hans, en þar áður hjá Birtingarhúsinu sem sérfræðingur. Jón Heiðar hefur einnig starfað við fjölmiðla og sem atvinnumaður í handbolta, svo eitthvað sé nefnt.

Þá hefur Stella Soffía Jóhannesdóttir verið ráðin til starfa hjá Forlaginu, en hún starfaði þar í sex ár áður en hún tók við starfi hjá Storytel á Íslandi. Hún hefur störf þann 1. maí á réttindastofu Forlagsins og mun þar vinna að mótun allsherjar umboðsskrifstofu fyrir íslenskar bókmenntir, sem erlendis verður kynnt undir heitinu Reykjavík Literary Agency.

„Stjórn Forlagins telur mikil tækifæri fólgin í réttindasölu, bæði á sviði bóka, kvikmynda og stafrænnar útgáfu, og er sannfærð um að reynsla Stellu og tengslanet komi þar að góðum notum.“

Stella er menntuð í bókmenntum og ritstjórn og hefur jafnframt verið framkvæmdastjóri Bókmenntahátíðar í Reykjavík frá 2009 auk þess að taka þátt í verkefninu Sögueyjan, sem kynnti Ísland sem heiðursgest á bókasýningunni í Frankfurt.