Tölvuleikjafyrirtæki Solid Clouds hefur ráðið Trausta Skúlason og Daria Podenok til að styrkja markaðsteymi félagsins. Umræddar ráðningar eru liður í að undirbúa útgáfu nýjasta leiks félagsins Starborne Frontiers sem kemur út á næsta ári.

Trausti Skúlason hefur verið ráðinn sem auglýsingahönnuður við framleiðslu auglýsingamyndbanda til að markaðssetja Frontiers á netmiðlum. Trausti er lærður þrívíddarteiknari frá Aarhus Tech og bandaríska skólanum Animation Mentor. Hann hefur reynslu af framleiðslu myndbanda fyrir meðal annars Gagarín, Brandenburg, RÚV og dönsku félögin Designit og JA film.

Daria Podenok hefur verið ráðin sem auglýsingastjóri Solid Clouds. Hún mun stýra netauglýsingaherferðum í tengslum við leik félagsins, Frontiers. Hún er með meistaragráðu í fréttamennsku frá Moskvuháskóla. Daria hefur reynslu af skipulagningu auglýsingaherferða á netinu og auglýsinga á samfélagsmiðlum. Hún starfaði núna síðast hjá Nordical Travel en áður starfaði hún hjá markaðsfyrirtækinu The Engine/Pipar og þar áður hjá Yandex.

Auk Trausta og Daria hefur Jay Soltani verið ráðinn inn í hönnunarteymi tekjukerfa. Jay Soltani er með BS í viðskiptafræði frá Western Governors University. Hann hefur áralanga reynslu af fjármálagreiningum hjá bandarískum félögunum; Centerpoint og Carlsbad.

„Það er fengur fyrir Solid Clouds að fá jafn öfluga og reynda starfsmenn til liðs við okkur þegar við hefjum nú undirbúning á markaðssetningu nýjasta leiks félagsins, Starborne Frontiers. Leikurinn er kominn langt í þróun og því spennandi tímar framundan hjá félaginu,” segir Stefán Gunnarsson, forstjóri Solid Clouds.