Sölvi Rúnar Pétursson hefur verið ráðinn markaðsstjóri Justikal. Helstu verkefni Sölva hjá Justikal eru að stýra markaðsstarfi félagsins á innlendum og erlendum mörkuðum en Justikal tryggði sér nýlega fjármögnun frá Eyri Vexti til að sækja á erlenda markaði.

Hugbúnaðarlausn Justikal miðar að því að auðvelda störf allra aðila sem koma að dómsmálum. Lausnin gerir m.a. lögmönnum og öðrum aðilum kleift að senda gögn rafrænt til dómstóla. Auk þess er fjöldi eiginleika í lausninni sem geta aukið afkastagetu aðila í réttarkerfinu.

Sölvi hefur sinnt markaðsmálum fyrir fjölda fyrirtækja, hérlendis og erlendis á síðustu árum. Síðastliðin fjögur ár starfaði Sölvi hjá auglýsingastofunni Ennemm. Áður starfaði hann í Kaupmannahöfn fyrir DigitasLBi Nordics, Evendo og Lessor A/S.

Sölvi lauk MS gráðu í viðskiptafræði með áherslu á markaðsfræði og alþjóðaviðskipti frá Háskóla Íslands og BSc gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands, þar að auki hefur hann lokið námi í stafrænni markaðssetningu frá Duke Háskólanum í Bandaríkjunum.

„Justikal hefur bætt við sig starfsfólki að undanförnu sem er liður í stækkun og eflingu félagsins. Það er mikill fengur að fá Sölva til liðs við okkur og styrkja liðsheildina enn frekar. Framundan eru auknar áskoranir og áframhaldandi vöxtur félagsins bæði hér heima sem og erlendis,“ segir Margrét Anna Einarsdóttir, framkvæmdastjóri Justikal.